Myndaveislur frá 2-0 sigri KA á Fylki

Fótbolti
Myndaveislur frá 2-0 sigri KA á Fylki
Frábær sigur í gær! (mynd: EBF)

KA tryggði sér dýrmæt þrjú stig á Greifavellinum í gær þegar liðið lagði Fylkismenn 2-0 að velli í Pepsi Max deildinni. Hallgrímur Mar Steingrímsson kom KA yfir strax á fyrstu mínútu leiksins og eftir rúmlega hálftíma leik tvöfaldaði Ásgeir Sigurgeirsson forystu liðsins.

Gestirnir reyndu að koma sér aftur inn í leikinn í þeim síðari en þrátt fyrir að KA hafi leikið manni færri síðustu 35 mínútur leiksins tókst Árbæingum ekki að koma boltanum í netið. Næst komust þeir seint í uppbótartíma er þeir fengu vítaspyrnu en Kristijan Jajalo var vandanum vaxinn í markinu og hélt hreinu.

Egill Bjarni Friðjónsson og Sævar Geir Sigurjónsson ljósmyndarar voru á leiknum og bjóða hér upp á myndaveislu frá sigrinum mikilvæga. Takk fyrir flottan stuðning úr stúkunni, já nú er gaman!


Smelltu á myndina til að skoða myndir Egils Bjarna frá leiknum


Smelltu á myndina til að skoða myndir Sævars Geirs frá leiknum


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is