Myndaveislur frá hörkuleik KA og KR

Fótbolti
Myndaveislur frá hörkuleik KA og KR
Stemningin var til fyrirmyndar í gær (mynd: EBF)

Leikur KA og KR í gær á Greifavellinum var dramatískur í meira lagi og voru strákarnir hársbreidd frá því að leggja Íslandsmeistarana að velli. KA-liðið skoraði að því er virtist löglegt mark sem var síðar dæmt af auk þess sem vítaspyrna fór í súginn.

Mætingin á leikinn var mjög góð og stemningin til fyrirmyndar, það sýndi sig og sannaði í gær hve mikilvægur þáttur stuðningsmanna er í leiknum og vonumst við til að sjá ykkur öll í næsta leik sem er á fimmtudaginn þegar ÍBV mætir norður í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.

Egill Bjarni Friðjónsson og Sævar Geir Sigurjónsson ljósmyndarar mættu á leikinn og bjóða hér til myndaveislu frá hasarnum, þökkum við þeim kærlega fyrir þeirra framlag.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Egils Bjarna frá leiknum


Smelltu á myndina til að skoða myndir Sævars Geirs frá leiknum


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is