Oleksiy Bykov til KA á láni

Fótbolti
Oleksiy Bykov til KA á láni
Velkominn í KA!

Úkraínumaðurinn Oleksiy Bykov er genginn til liðs við KA á lánsamning og leikur því með liðinu í Bestu deildinni sem hefst þann 20. apríl næstkomandi með heimaleik KA gegn Leikni.

Oleksiy er spennandi miðvörður sem kemur frá FK Mariupol en liðið leikur í efstu deild í Úkraínu. Hann lék þó framan af tímabili á láni hjá Búlgarska liðinu Lokomotiv Plovdiv þar sem hann lék 15 deildarleiki auk þess að spila þrjá leiki í undankeppni Sambandsdeild UEFA.

Oleksiy sem er nýorðinn 24 ára er 186 cm á hæð hóf ferilinn hjá stórliði Shakhtar Donetsk en gekk til liðs við Mariupol árið 2018 þar sem hann hefur verið síðan. Þá lék hann 9 landsleiki fyrir U21 árs landslið Úkraínu.

Við bíðum spennt eftir komu kappans norður og bjóðum hann innilega velkominn í KA.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is