Ottó Björn á úrtaksæfingar hjá U-18

Fótbolti

Þorvaldur Örlygsson þjálfari U-18 ára landsliðs karla í knattspyrnu hefur valið hóp leikmanna sem taka þátt í úrtaksæfingum dagana 1.-3. febrúar næstkomandi. KA á einn fulltrúa í hópnum en það er hann Ottó Björn og óskum við honum til hamingju með valið sem og góðs gengis á æfingunum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is