Ottó Björn skrifar undir 3 ára samning við KA

Fótbolti

Knattspyrnudeild KA gerði í dag þriggja ára samning við miðjumanninn Ottó Björn. Ottó sem verður 18 ára í sumar er mikið efni og kom meðal annars inná í 0-5 bikarsigri KA á Sindra fyrr í sumar. Auk þess hefur hann tvívegis verið í leikmannahóp KA í Pepsi Max deildinni það sem af er sumri.

Þá gekk Adam Örn Guðmundsson nýverið til liðs við KA frá Fjarðabyggð en hann er einnig fæddur árið 2001 og skrifaði hann undir þriggja ára samning við KA. Þrátt fyrir ungan aldur á Adam 35 meistaraflokksleiki fyrir Fjarðabyggð í 2. deildinni sem og bikarkeppninni.

Þessir samningar eru mikið gleðiefni fyrir félagið okkar og ætlumst við til mikils af þessum efnilegu köppum í gula og bláa búningnum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is