Risaleikur gegn KR kl. 16:00 í dag

Fótbolti
Risaleikur gegn KR kl. 16:00 í dag
Við þurfum á þínum stuðning að halda í dag!

Það er heldur betur stórleikur á dagskrá í dag þegar KA tekur á móti Íslandsmeisturum KR á Greifavellinum klukkan 16:00. Leikir liðanna undanfarin ár hafa verið stál í stál og má svo sannarlega búast við hörkuleik í dag.

Þetta verður þriðji leikur KA undir stjórn Arnars Grétarssonar en undir hans stjórn hefur liðið sótt 4 af þeim 6 stigum sem í boði eru. Það er ekki nokkur spurning að strákarnir eru klárir í að leggja allt sitt af mörkum til að tryggja þrjú mikilvæg stig en til að það geti gerst þurfum við að fjölmenna í stúkuna og láta vel í okkur heyra.

Athugið að leikurinn er ekki sýndur í sjónvarpi og því ekki nokkur spurning að skella sér á völlinn, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is