Sandra Mayor og Bianca Sierra áfram hjá Þór/KA

Fótbolti
Sandra Mayor og Bianca Sierra áfram hjá Þór/KA
Við undirritun samninganna í dag (mynd: Þór/KA)

Sandra Mayor og Bianca Sierra skrifuðu í dag undir nýja samninga við lið Þór/KA og munu því leika með liðinu næsta sumar. Þetta eru frábærar fréttir enda báðar algjörir lykilleikmenn í okkar liði. Þær munu koma til liðs við liðið í janúar en undanfarnar vikur hafa þær verið að leika í undankeppni HM með Mexíkóska landsliðinu.

Mayor eða Borgarstjórinn eins og hún er oftast kölluð hefur verið einn besti leikmaður deildarinnar þau ár sem hún hefur leikið með liðinu en hún hefur gert 46 mörk í 53 leikjum í Pepsi deildinni auk þess sem hún var valin besti leikmaður deildarinnar árið 2017 er Þór/KA varð Íslandsmeistari.

Bianca hefur leikið tvö tímabil með liðinu og frá upphafi sýnt styrk sinn í varnarlínu liðsins. Við óskum öllum sem koma að Þór/KA til hamingju með áfangann og hlökkum til að sjá þessar flottu knattspyrnukonur áfram í okkar röðum á komandi tímabili.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is