Síðasti séns að tryggja sér afmælistreyju KA 1989!

Fótbolti
Síðasti séns að tryggja sér afmælistreyju KA 1989!
Þú vilt ekki missa af þessum safngrip!

Í tilefni af 30 ára afmælis Íslandsmeistaratitils KA í knattspyrnu fór KA af stað með sölu á sérstökum afmælistreyjum af varatreyju liðsins árið 1989. Liðið lék einmitt í bláu treyjunum góðu þegar titillinn var tryggður í Keflavík í lokaumferðinni. Á afmælistreyjunni eru áletruð úrslit sem og dagssetning leiksins og á bakinu stendur smátt Lifi Fyrir KA.

Nú stendur yfir afhending á treyjunum til þeirra sem forpöntuðu en nokkrar aukatreyjur eru enn til og því enn möguleiki á að verða sér útum þennan mikla safngrip. Athugið að ekki verða framleiddar fleiri treyjur og því er þetta síðasti séns þeirra sem ekki forpöntuðu.

Treyjurnar eru til frá XS og upp í XXXXXL og eru seldar í afgreiðslu KA-Heimilisins. Afgreiðslan er opin virka daga frá klukkan 16:00 og til 21:00. Allar fyrirspurnir varðandi treyjurnar fara í gegnum agust@ka.is.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is