Sindri valinn á úrtaksæfingar hjá U15

Fótbolti
Sindri valinn á úrtaksæfingar hjá U15
Skemmtilegt verkefni framundan hjá Sindra

Sindri Sigurðsson hefur verið valinn á úrtaksæfingar hjá U15 ára landsliði Íslands í knattspyrnu. Sindri er gríðarlega öflugur strákur sem lék meðal annars sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir KA nú í desember er liðið mætti KA2 í Kjarnafæðismótinu.

Þá var Sindri einn af átta strákum úr KA sem fóru til æfinga hjá danska félaginu FC Midtjylland í nóvember. Hinir strákarnir sem fóru í það skemmtilega verkefni voru þeir Björgvin Máni Bjarnason, Hákon Orri Hauksson, Ágúst Ívar Árnason, Dagbjartur Búi Davíðsson, Elvar Máni Guðmundsson, Valdimar Logi Sævarsson og Mikael Breki Þórðarson.

Lúðvík Gunnarsson er landsliðsþjálfari hjá U15 og mun hópurinn æfa dagana 4.-6. mars næstkomandi. Við óskum Sindra til hamingju með valið sem og góðs gengis á komandi æfingum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is