Steinþór Freyr framlengir við KA

Fótbolti

Knattspyrnudeild KA og Steinþór Freyr Þorsteinsson hafa gert eins árs framlengingu á samning sínum og því ljóst að Steinþór leikur með KA á næstu leiktíð. Þetta eru miklar gleðifregnir enda er Steinþór öflugur leikmaður og flottur karakter sem hefur komið sterkur inn í félagið.

Steinþór lauk nýverið sínu öðru tímabili með KA eftir að hafa komið frá Sandnes Ulf í Noregi. Steinþór sem er 33 ára hefur á sínum tíma með KA leikið 32 leiki í deild og bikar og skoraði nýverið sitt fyrsta mark fyrir félagið.

"Það er alltaf góð tilfinning að vera búinn að klára samningsmál og mér hefur liðið mjög vel á Akureyri. Tíminn hjá KA hefur verið smá erfiður vegna þó nokkurra meiðsla en vonandi er sá tími búinn og ég get byrjað að einbeita mér að spila fótbolta.

Mér líst mjög vel á Óla Stefán sem nýjan þjálfara og verður gaman að sjá hvaða áherslur hann mun koma með inn í klúbbinn. Standið á mér sjálfum er mjög gott og í raun frekar pirrandi að það komi svona í lok móts en ég ætla að byggja ofan á þetta og ná því inn í næsta tímabil. Ég er allavega byrjaður í TFW upp í KA til þess að viðhalda formi, styrk og annað!" sagði Steinþór í spjalli við heimasíðuna.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is