Steinþór Már bestur á lokahófi KA

Fótbolti

Lokahóf knattspyrnudeildar KA fór fram um helgina þar sem mögnuðu tímabili KA var fagnað og gert upp. Hófið var haldið í Golfskálanum og það með Októberfest blæ undir stjórn Rikka G. Þá spiluðu þeir Stebbi Jak og Magni fyrir gesti og myndaðist svo sannarlega skemmtileg stemning.

Steinþór Már Auðunsson var valinn besti leikmaður KA en Steinþór sló í gegn í sumar. Steinþór sem er uppalinn hjá KA gekk aftur til liðs við liðið frá Magna fyrir tímabilið og nýtti heldur betur tækifærið til fulls. Hann lék alla leiki KA í sumar og vakti verðskuldaða athygli en hann var valinn besti markvörður tímabilsins af sérfræðingum Pepsi Max stúkunnar og valinn í úrvalslið Morgunblaðsins.

Hallgrímur Mar Steingrímsson var markahæsti leikmaður KA í sumar en hann gerði alls 11 mörk í Pepsi Max deildinni. Grímsi átti frábært sumar og var meðal annars valinn í lið ársins af sérfræðingum Pepsi Max stúkunnar sem og hjá Fótbolta.net og Morgunblaðinu. Grímsi er í dag markahæsti leikmaður í sögu KA með 77 mörk og er auk þess leikjahæsti leikmaður félagsins með 251 leik.

Þorri Mar Þórisson var valinn efnilegasti leikmaður liðsins en Þorri sem er 22 ára gamall hefur bætt sig gríðarlega í bakverðinum og var ákaflega traustur í sumar. Hann lék alla leiki sumarsins fyrir utan einn og skilaði sínu hlutverki svo sannarlega bæði í vörn og sókn.

Þá verðlaunuðu leikmenn KA einn dyggasta stuðningsmann liðsins og afhenti Ásgeir Sigurgeirsson fyrirliði honum Jóni Arnari Jónssyni áritaða treyju. Jón Arnar hefur farið fyrir trommusveit KA undanfarin ár og missir nær aldrei af leik og er heldur betur ómetanlegur þáttur í starfi félagsins.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is