Stórleikur gegn KR á sunnudag!

Fótbolti
Stórleikur gegn KR á sunnudag!
Mikilvægur leikur framundan (mynd: EBF)

Nú eru aðeins 5 umferðir eftir í Pepsi Max deild karla og má með sanni segja að gríðarleg spenna sé til staðar. KA liðið stendur í 10. sæti með 20 stig og er tveimur stigum frá fallsæti, á sama tíma eru einungis 5 stig upp í 5. sæti deildarinnar. Það er því ansi mikilvægt að halda áfram að safna inn stigum og það ætlum við að gera á sunnudaginn kl. 16:00.

Andstæðingar okkar á sunnudaginn eru KR-ingar sem hafa verið besta lið sumarsins en þeir tróna á toppi deildarinnar með 39 stig og geta með sigri á Greifavellinum farið langleiðina með að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.

Stuðningurinn við KA liðið hefur verið stórkostlegur í sumar og klárt að við þurfum áfram að leggjast á eitt til að tryggja áframhaldandi veru í deild þeirra bestu.

Í síðustu umferð voru strákarnir hársbreidd frá því að fara með öll þrjú stigin heim frá Vestmannaeyjum en þurftu á endanum að sætta sig við 1-1 jafntefli. Nokkrir grjótharðir KA-menn fylgdu liðinu til Eyja og þar á meðal var ljósmyndarinn Egill Bjarni Friðjónsson og smellti hann af nokkrum myndum sem má sjá hér fyrir neðan.


Smelltu á myndina til að skoða myndirnar úr leik ÍBV og KA

Kæru KA-menn, það er langt liðið á sumarið og aðeins þrír heimaleikir eftir. Við þurfum á ykkur öllum að halda á sunnudaginn og við hlökkum svo sannarlega til að sjá ykkur gul og glöð í stúkunni, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is