Stórleikur í Lengjubikarnum á laugardaginn

Fótbolti

KA hefur leik í Lengjubikarnum í knattspyrnu á laugardaginn þegar liðið tekur á móti Íslandsmeisturum Vals í Boganum klukkan 17:00. Það er um að gera að fjölmenna á leikinn enda gerast leikirnir vart stærri á undirbúningstímabilinu.

Á dögunum vann KA sigur á Kjarnafæðismótinu þar sem liðið vann alla leiki sína, þar á meðal 2-1 sigur á nágrönnunum í Þór í úrslitaleik mótsins. Leikurinn gegn Valsmönnum verður kærkomið tækifæri fyrir liðið til að reyna sig við sterkari andstæðing og ljóst að Óli Stefán og strákarnir munu fá betri sýn á standið á liðinu eftir leikinn.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is