Stórsigur á Leikni R. í Mjólkurbikarnum

Fótbolti
Stórsigur á Leikni R. í Mjólkurbikarnum
Mynd - Sævar Geir

KA vann í kvöld Leikni frá Reykjavík 6-0 í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. KA leiddi í hálfleik 2-0. Leiknismenn léku tveimur mönnum færri frá 31. mínútu eftir tveimur leikmönnum þeirra var vikið af velli. Í síðari hálfleik bætti KA liðið fjórum mörkum og uppskar að lokum 6-0 sigur.

KA 6 - 0 Leiknir R.
1 - 0 Nökkvi Þeyr Þórisson (’6) Stoðsending: Ívar Örn
1 - 0 Rautt spjald: Sólon Breki Leifsson (’30)
1 - 0 Rautt spjald: Brynjar Hlöðversson (’31)
2 - 0 Mikkel Qvist (’39) Stoðsending: Brynjar Ingi
3 - 0 Hallgrímur Mar Steingrímsson (’55) Stoðsending: Nökkvi Þeyr
4 - 0 Gunnar Örvar Stefánsson (’62) Stoðsending: Nökkvi Þeyr
5 - 0 Nökkvi Þeyr Þórisson (’74) – Víti – Stoðsending: Gunnar Örvar
6 - 0 Steinþór Freyr Þorsteinsson (’90) Stoðsending: Ýmir Már

Áhorfendatölur:

267 áhorfendur

Lið KA:

Kristijan Jajalo, Hrannar Björn, Brynjar Ingi, Hallgrímur J, Mikkel Qvist, Ívar Örn, Andri Fannar, Bjarni Aðalsteins, Hallgrímur Mar, Nökkvi Þeyr og Guðmundur Steinn.

Bekkur:

Aron Dagur, Almarr, Ásgeir, Ýmir Már, Gunnar Örvar, Steinþór Freyr og Sveinn Margeir.

Skiptingar:

Ýmir Már inn – Hallgrímur J út (’23)
Steinþór Freyr inn – Hrannar Björn út (’46)
Sveinn Margeir inn – Hallgrím Mar út (’58)
Gunnar Örvar inn – Guðmundur Steinn út (’58)
Almarr inn – Mikkel út (’82)

Óli Stefán gerði þrjár breytingar frá síðasta leik gegn Víkingi. Inn í liðið komu þeir Kristijan Jajalo, Andri Fannar og Guðmundur Steinn fyrir Aron Dag, Ásgeir og Almarr sem tóku sér sæti á bekknum.

KA liðið hóf leikinn af krafti og eftir aðeins 6 mínútna leik var liðið komið yfir. Þá átti Andri Fannar sendinu upp í horn á Ívar Örn sem gaf inn í teig á Nökkva Þey sem kom á ferðinni og náði laglegu vinstri fótarskoti sem endaði í markinu. Góð byrjun hjá KA liðinu.

Eftir tuttugu mínútna leik fór Sólon Breki í mjög glæfralega tæklingu á Hallgrím Jónasson sem þurfti að fara af velli meiddur. Sólon uppskar einungis gult spjald sem var vægast sagt vel sloppið. Enda um klárt rautt spjald að ræða. Var alltof seinn í þessa tæklingu og var Hallgrímur fluttur á brott með sjúkrabíl. Við óskum Hallgrími góðs bata. En þetta leit alls ekki vel út.

Aðeins tíu mínútum síðar var Sólon Breki aftur á ferðinni og kom hann þá með aðra glórulausa tæklingu á Kristijan Jajalo sem lá einnig óvígur eftir. Valdimar Pálsson dómari leiksins gaf honum sitt seinna gula spjald og hefði hann hæglega geta fengið beint rautt fyrir þetta brot rétt eins og það fyrra. Eitthvað fór spjald illa í Leiknismenn en Brynjar Hlöðversson leikmaður þeirra mótmælti því við dómara leiksins og uppskar einnig sitt annað gula spjald og Leiknismenn því orðnir 9 inn á vellinum og rétt rúmur hálftími liðin af leiknum.

Örstuttu seinna komst fyrirliði Leiknismanna óvænt í dauðafæri eftir mistök í vörn KA en skot hans var yfir markið.

Nokkrum mínútum síðar átti Bjarni Aðalsteins hornspyrnu sem Brynjar Ingi skallaði á fjærstöngina þar sem Mikkel Qvist var einn og óvaldaður og skallaði hann boltann í netið og KA komið í 2-0.

Rétt fyrir leikhlé átti svo Guðmundur Steinn skalla í slá og tók hann svo sjálfur frákastið og tók hjólhestaspyrnu rétt framhjá markinu og mátti engu muna að hann næði að skora sitt fyrsta mark fyrir KA. Skömmu seinna flautaði Valdimar til hálfleiks og staðan 2-0 KA í vil.

KA hóf seinni hálfleikinn af krafti og eftir skamma stund átti Hallgrímur Mar langskot sem fór rétt framhjá. Nokkrum andartökum seinna átti Hallgrímur svo frábæra sendingu inn fyrir á Nökkva sem var í algjöru dauðafæri en skaut hann himinhátt yfir markið í góðri stöðu.

KA liðið lét svo kné fylgja kviði og sótti á níu Leiknismenn sem máttu síns lítið. Á 55. mínútu áttu Nökkvi og Hallgrímur Mar laglegan samleik við vítateigin sem lauk með flottri hælsendingu frá Nökkva og var Hallgrímur Mar kominn í gott færi sem hann kláraði vel og kom hann KA í 3-0.

Skömmu síðar gerði KA tvöfalda skiptingu og komu þeir Gunnar Örvar og Sveinn Margeir inn á. Gunnar Örvar var ekki lengi að láta til sín taka og skoraði hann eftir einungis þrjár mínútur eftir magnaðan undirbúning frá Nökkva sem lék á varnarmenn Leiknis og gaf á Gunnar Örvar sem var aleinn í teignum og kláraði hann færið og kom KA í 4-0.

Á 74. mínútu komst Gunnar Örvar einn í gegn og var rifinn niður af varnarmanni Leiknis og víti réttilega dæmt. Á punktinn steig Nökkvi Þeyr og skoraði hann af miklu öryggi með föstu skoti upp í vinstra hornið og kom KA í 5-0.

Það var svo við lok venjulegs leiktíma sem Steinþór Freyr skoraði síðasta mark KA þegar að Ýmir Már átti fyrirgjöf fyrir markið sem Steinþór Freyr kláraði af stuttu færi og 6-0 sigur KA staðreynd og sæti í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins tryggt. Dregið verður í 16-liða úrslit bikarsins á föstudaginn og spennandi að sjá hverja KA fær í næstu umferð.

Nivea KA-maður leiksins: Nökkvi Þeyr (2 mörk og 2 stoðsendingar. Var magnaður í sóknarleik KA í kvöld. Var nálægt því að skora þrennuna og mataði samherja sína í sífellu með góðum sendingum og vann vel fyrir liðið.)

Næsti leikur KA er á sunnudaginn næstkomandi þegar KA fer í Garðabæinn og mætir Stjörnunni í 3. umferð Pepsi Max Deildarinnar. Leikurinn hefst kl. 17:00 og hvetjum við alla KA-menn á höfuðborgarsvæðinu að mæta og styðja okkar menn.

Áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is