Stórt Stefnumót á laugardaginn

Fótbolti
Stórt Stefnumót á laugardaginn
Það verður líf og fjör á morgun!

Það verður engin smá veisla í Boganum á morgun, laugardag, þegar Stefnumót KA fyrir 6.-8. flokk karla og kvenna fer fram. Þetta er stærsta Stefnumót KA til þessa og verða keppendur um 840 talsins, þar af 220 hjá KA. Alls taka þátt 155 lið á mótinu og þar á meðal eru 44 lið frá KA.

KA heldur úti rútuferðum fyrir iðkendur sína í 6. og 7. flokk til að komast á æfingar í Boganum yfir veturinn og er mótið liður í fjármögnun þess. Alls koma um 120 sjálfboðaliðar að mótinu og er hópurinn bæði skipaður foreldrum sem og eldri iðkendum KA.

Það verða margir stuttir leikir þar sem leikirnir verða flautaðir af á sama tíma á öllum átta völlum. Þetta er gert til að tímasetningar standist. Það er því mikilvægt að hvert lið sé tilbúið á réttum tíma á réttum velli þannig að leikirnir byrji á réttum tíma.

Veislan hefst klukkan 9:20 og má sjá leikjaplan mótsins hér fyrir neðan. Við hvetjum sjálfsögðu alla sem áhuga hafa til að renna við í Bogann og sjá knattspyrnuhetjur framtíðarinnar leika listir sínar.

Hér má sjá í hvaða hóp hvert lið er í

Leikjaplan hópur 1 - 6. kk, 6. kv og 7. kk

Leikjaplan hópur 2 - 7. kv, 8. kk og 8. kv

Leikjaplan hópur 3 - 7. kk og 7. kv

Leikjaplan hópur 4 - 6. kv og 6. kk


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is