Sveinn Þór ráðinn aðstoðarþjálfari KA

Fótbolti
Sveinn Þór ráðinn aðstoðarþjálfari KA
Hjörvar og Sveinn við undirritunina

Knattspyrnudeild KA skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Svein Þór Steingrímsson um að hann taki við sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu. Á dögunum skrifaði Óli Stefán Flóventsson undir sem nýr aðalþjálfari liðsins og verður spennandi að fylgjast með samstarfi þeirra Óla og Sveins með liðið.

Mikil ánægja er með komu Sveins í KA en hann kemur frá Dalvík/Reyni sem hann gerði að Deildarmeisturum í 3. deild í sumar og kom liðinu þar með upp í 2. deild.

Sem leikmaður lék hann með Grindavík, Njarðvík, GG, Hamar, Þrótti Vogum, Magna og Dalvík/Reyni. Með Grindavík lék Sveinn einmitt með Óla Stefáni og þekkjast þeir því vel.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is