Svekkjandi tap á Meistaravöllum

Fótbolti
Svekkjandi tap á Meistaravöllum
Engin stig þrátt fyrir góðan leik (Þórir Tryggva)

KA sótti KR heim í 7. umferð Pepsi Max deildar í gær en leikurinn var síðasti leikurinn fyrir landsleikjahlé. Deildin hefur farið gríðarlega jafnt af stað og því voru ansi mikilvæg þrjú stig í boði en KA var fyrir leikinn með 9 stig en KR 11.

KR 1 - 0 KA
Kennie Chopart, KR ('52)
1-0 Hrannar Björn Steingrímsson ('68, sjálfsmark)

Leikurinn byrjaði fjörlega og ljóst að bæði lið voru mætt til að sækja sigur, heimamenn byrjuðu ögn betur en vörn KA var þétt fyrir og gaf fá færi af sér. KA liðið kom sér betur og betur í takt sóknarlega er leið á og Steinþór Freyr Þorsteinsson fékk úrvalsfæri á 9. mínútu en skot hans fór yfir markið.

Ýmir Már Geirsson fékk einnig gott tækifæri á að koma boltanum í netið undir lok hálfleiksins er boltinn skoppaði af varnarmanni KR til hans vinstra megin í teignum en fast skot hans fór rétt yfir markið. Hvorugu liðinu tókst því að skora í fyrri hálfleik og staðan því markalaus.

KA liðið í raun óheppið að vera ekki yfir og staða liðsins vænkaðist strax í upphafi síðari hálfleiks er Kennie Chopart leikmaður KR fékk sitt annað gula spjald er hann féll í teignum. Í kjölfarið stýrði KA liðið leiknum og þjarmaði að heimamönnum sem vörðust vel og skipulega.

Það var því ansi mikið áfall er Hrannar Björn Steingrímsson varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á 68. mínútu eftir fyrirgjöf frá Arnþóri Inga Kristinssyni. KR-ingar bættu við í vörninni eftir markið og ætluðu greinilega að verja forskotið og það skiljanlega.

Þrátt fyrir mikinn sóknarþunga KA liðsins gekk strákunum illa að koma sér í góð færi en flestar sóknir liðsins enduðu með fyrirgjöf inn í teig sem heimamönnum gekk vel að vinna úr. Í uppbótartíma fékk KA aukaspyrnu rétt utan við teiginn og Hallgrímur Mar Steingrímsson átti hörkuskot sem small í slánni alveg útvið stöngina og KR slapp með skrekkinn.

1-0 tap því staðreynd sem er hrikalega svekkjandi niðurstaða enda var spilamennska KA liðsins að mestu góð. Strákarnir fengu nokkur úrvalsfæri á að koma boltanum í netið, þá sérstaklega í fyrri hálfleik, en inn vildi boltinn ekki.

Tæpar tvær vikur eru í næsta leik sem er ansi fínt enda búið að vera gríðarlegt álag á liðinu sem og öllum liðum efstu deildar. KA liðið er með 9 stig í 8. sæti deildarinnar en er aðeins tveimur stigum á eftir FH sem situr í 4. sætinu og því enn gríðarleg spenna í þessari skemmtilegu deild.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is