Þór/KA með öruggan sigur á Wexford

Fótbolti
Þór/KA með öruggan sigur á Wexford
Úrslitaleikur framundan hjá stelpunum (mynd: Þ.Tr)

Þór/KA mætti Wexford í kvöld í öðrum leik liðanna í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Stelpurnar gátu með sigri tryggt sér hreinan úrslitaleik við Ajax í lokaumferðinni um sæti í 32-liða úrslitum en aðeins efsta sæti riðilsins gefur öruggt sæti í næstu umferð.

Þór/KA 3 - 0 Wexford Youths
1-0 Sandra María Jessen ('5)
2-0 Hulda Björg Hannesdóttir ('10)
3-0 Hulda Ósk Jónsdóttir ('18)

Leikurinn gat varla byrjað betur fyrir okkar lið því að fyrirliðinn hún Sandra María Jessen skoraði strax á 5. mínútu eftir stoðsendingu frá Huldu Ósk Jónsdóttur. Ekki leið á löngu uns staðan var orðin 2-0 því fimm mínútum síðar var Hulda Björg Hannesdóttir búin að tvöfalda forystuna eftir sendingu frá Andreu Mist Pálsdóttur.

Yfirburðir stelpnanna héldu áfram og þriðja markið kom á 18. mínútu þegar Hulda Ósk Jónsdóttir kláraði vel eftir góðan undirbúning hjá Söndru Mayor. Lygileg byrjun á leiknum og stelpurnar komnar í góðan möguleika á að fara upp fyrir Ajax á markatölu fyrir lokaumferðina ef þær næðu að bæta við marki.

Þrátt fyrir nokkrar ágætar tilraunir urðu mörkin ekki fleiri í fyrri hálfleiknum og staðan því 3-0. Í síðari hálfleik gáfu þær Írsku í og pressuðu meira eftir marki. Sem betur fer kom það aldrei en á sama tíma tókst okkar liði ekki að bæta við og lokatölur því 3-0.

Staðan í riðlinum er því þannig að Ajax er efst með sömu markatölu og Þór/KA en hefur skorað einu marki meira og dugar því jafntefli í lokaleiknum til að vinna riðilinn. Það er því klárt að stelpurnar þurfa að halda áfram á sigurbraut til að tryggja sætið í næstu umferð.

Ævintýrið heldur því áfram en leikurinn gegn Ajax verður á mánudaginn klukkan 15:00.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is