Þór/KA og Hamrarnir mætast í dag

Fótbolti

Það má búast við fjörugum leik í Boganum í dag þegar Þór/KA og Hamrarnir mætast í Kjarnafæðismóti kvenna klukkan 15:15. Bæði lið unnu sannfærandi sigur í sínum fyrsta leik á mótinu auk þess sem að liðin þekkjast ansi vel.

Hamrarnir unnu 5-0 sigur á Tindastól á sama tíma og Þór/KA vann 4-0 sigur á Völsung og má því reikna með mörkum í leik dagsins. Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta á leikinn en fyrir þá sem ekki komast verður hann í beinni á KA-TV og er hægt að nálgast útsendinguna hér fyrir neðan.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is