Þór/KA sækir Stjörnuna heim kl. 16:00

Fótbolti
Þór/KA sækir Stjörnuna heim kl. 16:00
Jakobína ætlar sér 3 stig í dag!

Þá er komið að fyrsta leik Þórs/KA eftir Covid-19 pásuna en liðið mætir í Garðabæinn í dag og mætir þar liði Stjörnunnar klukkan 16:00. Stelpurnar unnu góðan 2-1 sigur í síðasta leik og eru staðráðnar í að sækja 3 stig gegn Stjörnunni.

Liðin mættust á Þórsvelli í fyrstu umferð sumarsins og þar unnu stelpurnar glæsilegan 4-1 sigur þar sem Karen María Sigurgeirsdóttir gerði tvö mörk og þær María Catharina Ólafsd. Gros og Hulda Ósk Jónsdóttir gerðu sitthvort markið. María Sól Jakobsdóttir lagaði stöðuna í 3-1 fyrir gestina en sannfærandi sigur okkar liðs var aldrei í hættu.

Við minnum á að engir áhorfendur eru leyfðir á leiknum vegna Covid aðstæðna en hann verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og því um að gera að fylgjast vel með gangi mála, áfram Þór/KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is