Tilnefningar til íþróttakonu KA 2022

Almennt | Fótbolti | Handbolti | Júdó | Blak

Sex konur eru tilnefndar til íþróttakonu KA fyrir árið 2022. Þetta er í þriðja skiptið sem verðlaunin eru afhent hvoru kyni og hefur ríkt mikil ánægja með þá breytingu. Deildir félagsins tilnefndu aðila úr sínum röðum og verður valið kunngjört á 95 ára afmæli félagsins þann 7. janúar næstkomandi.

Edda Ósk er júdókona KA í ár en Edda skellti sér í keppnisgallann á árinu þar sem hún veitti bestu stelpum landsins verðuga keppni. Edda keppti á Norðurlandamóti sem haldið var í Reykjavík í apríl þar sem hún vann til silfurverðlauna í -78 kg og svo til gullverðlauna með íslensku sveitinni í sveitakeppninni og þar með Norðurlandameistaratitil.

Ekki nóg með að fara mikinn á gólfinu sjálf hefur Edda einnig verið afar mikilvægur hlekkur í starfi júdódeildar KA og reynst deildinni mikill og góður liðsmaður.

Jóna Margrét er þrátt fyrir ungan aldur aðal uppspilari meistaraflokks kvenna hjá KA og á síðasta tímabili varð hún Deildar-, Bikar og Íslandsmeistari með liðinu. Jóna tók við fyrirliða hlutverki liðsins seinnihluta tímabilsins og í lok tímabilsins var Jóna valin besti uppspilari úrvalsdeildar BLÍ ásamt því að vera með næst flest stig úr uppgjöf.

Í sumar var Jóna valin í A landsliðið þegar það tók þátt í undankeppni Evrópumóts, auk þess var hún valin í U21 árs landsliðið þegar það tók þátt í Evrópukeppni smáþjóða og undankeppni smáþjóða í maí. Í Evrópukeppni smáþjóða lenti liðið í 2. sæti. Einnig var hún valin í U19 ára landsliðið þegar það tók þátt á Norðurevrópumóti nú í haust og spilaði hún þar sem aðal uppspilari liðsins. Í lok móts var hún valin mikilvægasti leikmaður íslenska liðsins.

Á milli landsliðsverkefna fór Jóna til Spánar þar sem hún æfði með FC Cartagena og var þar á reynslu í mánuð. Það sem af er þessu tímabili er meistarflokkur kvenna hjá KA í efsta sæti úrvalsdeildarinnar ásamt því að hafa orðið Meistar meistarana í upphafi tímabilsins. Jóna er nú sem stendur með flest stig úr uppgjöf og hefur þurft að bregða sér í hluverk sóknarmanns með mjög góðum árangri. Það má því með sanni segja að Jóna sé fjölhæfur leikmaður sem hefur spilað lykilhlutverk í velgengi meistarflokks KA undanfarið. Jóna er metnaðarsöm og drífandi leikmaður ásamt því að vera yfirveguð þegar þörf er á, sem er nauðsynlegur eiginleiki uppspilara. Jóna er einnig til fyrirmyndar innan sem utan vallar.

Margrét hefur lagt mikið á sig til að bæta sig sem knattspyrnukonu og hefur vaxið sem leikmaður undanfarin ár með meiri ábyrgð innan liðsins. Í mjög ungu liði Þórs/KA er hún orðin ein af eldri leikmönnum og hefur því tekið á sig meiri ábyrgð innan sem utan vallar og er meðal annars ein af þremur fyrirliðum hópsins.

Margrét mætir alltaf til leiks af fullum krafti og gefur sig alla í verkefnið hverju sinni. Hún er útsjónarsöm sem miðju- og sóknarleikmaður, hefur í senn gott auga fyrir samspili og skapar þannig færi fyrir samherjana auk þess sem hún er sjálf jafnframt öflugur markaskorari eins og hún hefur sýnt og sannað. Margrét spilaði 24 leiki með Þór/KA á árinu í Bestu deildinni, Mjólkurbikarnum og Lengjubikarnum og skoraði í þeim leikjum níu mörk. Auk þess spilaði hún fimm leiki með Þór/KA í æfingamótum (Kjarnafæðismótið og Faxaflóamótið) og skoraði í þeim leikjum fjögur mörk. Nú seint á árinu var Margrét valin til æfinga með A landsliði Íslands.

Rakel Sara steig ung sín fyrstu skref í meistaraflokki en sýndi strax að hún var klár í baráttuna í deild þeirra bestu og varð strax aðal hægri hornamaður KA/Þórs. Í kjölfarið stimplaði hún sig inn sem einn besti hægri hornamaður landsins og fékk tækifæri með A-landsliði Íslands. Þar hefur hún haldið áfram að bæta sig og er nú fastamaður í hópnum.

Rakel Sara spilaði algjört lykilhlutverk í hinu ótrúlega tímabili þegar KA/Þór stóð uppi sem Íslands-, Bikar- og Deildarmeistari og á síðasta tímabili gerði hún alls 168 mörk í deild og bikar. Í sumar tók hún svo stökkið í atvinnumennsku og leikur nú með liði Volda í norsku úrvalsdeildinni þar sem hún byrjar hvern einasta leik í hægra horninu.

Rut Jónsdóttur þarf vart að kynna fyrir KA fólki en hún hefur komið eins og stormsveipur inn í kvennaliðið og íslensku deildina eftir mörg sigursæl ár í atvinnumennsku. Á fyrsta tímabili sínu með KA/Þór vann liðið allt sem hægt var að vinna og braut þar með blað í sögu félagsins og var Rut í kjölfarið kjörin besti leikmaður Íslandsmótsins.

Síðasta vetur gerðu stelpurnar í KA/Þór harða atlögu að öllum titlum sem í boði voru með Rut í fararbroddi og tók þar að auki þátt í Evrópukeppni í fyrsta skiptið þar sem liðið fór alla leið í 16-liða úrslit keppninnar. Rut er einn reynslumesti leikmaður íslenska kvennalandsliðsins þar sem hún er fyrirliði. Rut leggur sig alltaf fram í því sem hún tekur sér fyrir hendur og hefur skilað frábæru starfi í þjálfun yngri leikmanna síðastliðin tvö ár.

Valdís Kapitola er aðal frelsingi meistaraflokks kvenna hjá KA og á síðasta tímabili hampaði hún öllum titlunum sem í boði þegar hún varð Deildar-, Bikar- og Íslandsmeistari með liðinu. Valdís átti hreint út sagt frábært tímabil og að loknum bikarúrslitaleiksins var hún valin besti leikmaður leiksins. Í lok tímabilsins var hún jafnframt valin besti frelsingi úrvalsdeildar BLÍ.

Ásamt því að vera lykilleikmaður í liði KA spilaði hún stórt hlutverk í A–landsliðinu í sumar þegar það tók þátt í undankeppni Evrópumóts. Það sem af er þessu tímabili er meistarflokkur kvenna hjá KA í efsta sæti úrvalsdeildarinnar, ásamt því að hafa orðið Meistar Meistaranna í upphafi tímabilsins. Valdís er ekki einungis lykilleikmaður liðsins heldur er hún góður liðsmaður og lyftir öðrum upp á hærra plan með sinni einstöku baráttu og leikgleði. Valdís er einnig fyrirmyndar leikmaður innan sem utan vallar. Á dögunum var hún loks kjörin blakkona ársins hjá Blaksambandi Íslands.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is