Torfi Tímoteus á láni til KA

Fótbolti
Torfi Tímoteus á láni til KA
Torfi og Óli Stefán handsala samninginn

Torfi Tímoteus Gunnarsson hefur skrifað undir eins árs lánssamning við knattspyrnudeild KA og mun því leika með liðinu í Pepsi deildinni í sumar. Torfi, sem verður tvítugur síðar í mánuðinum, kemur til KA frá Fjölni þar sem hann hefur leikið allan sinn feril og þekkir hann því ansi vel að klæðast gulu og bláu.

Torfi er öflugur varnarmaður sem hefur leikið fyrir öll yngri landslið Íslands og eru landsleikirnir orðnir 32 og þrátt fyrir að leika aftarlega á vellinum eru landsliðsmörkin 5 talsins. Undanfarin tvö sumur hefur hann leikið með meistaraflokki Fjölnis í efstu deild þar sem hann hefur leikið 34 leiki og gert í þeim 1 mark.

Það er klárt mál að koma Torfa til KA mun styrkja liðið og viljum við bjóða hann velkominn norður og ætlumst við mikils af honum í sumar.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is