Tryggðu þér ársmiða fyrir fyrsta leik!

Fótbolti

Fyrsti heimaleikur KA í sumar er á miðvikudaginn! Strákarnir taka á móti Leikni Reykjavík þann 12. maí klukkan 17:30 á Dalvíkurvelli. Takmarkanir eru á áhorfendafjölda þessa dagana á leikjum og ljóst að aðeins 200 áhorfendur munu fá að mæta á leikinn.

Ath! Það voru einhver vandræði á ársmiðasölunni í gær, mánudaginn 10. maí, en búið er að greiða úr þeirri flækju.

Við brýnum því fyrir stuðningsmönnum KA að tryggja sér ársmiða í gegnum miðasöluappið Stubbur en ársmiðahafar munu fá forgang á völlinn í sumar á meðan fjöldatakmarkanir eru í gangi.

Eins og undanfarin ár eru þrjár týpur af ársmiðum í boði og eru þær eftirfarandi:

Bronsmiði - 20.000 kr

Bronsmiði gefur aðgang að öllum heimaleikjum KA í Pepsi Max deildinni.

16-25 ára - 12.500 kr

16-25 ára fá bronsmiða sem gefur aðgang að öllum heimaleikjum KA í Pepsi Max deildinni á 12.500 krónur.

Silfurmiði - 35.000 kr

Silfurmiði gefur aðgang að öllum heimaleikjum KA í Pepsi Max deildinni auk þess sem að hamborgari og drykkur fyrir leik fylgir öllum leikjunum.

Gullmiði - 50.000 kr

Gullmiði gefur aðgang að öllum heimaleikjum KA í Pepsi Max deildinni auk þess sem að hamborgari og drykkur fyrir leik fylgir öllum leikjunum. Þá bætist við auknar veitingar og ýmis fríðindi ofan á það sem innifalið er í silfurmiðanum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is