Vel heppnuðum fótboltaskóla KA lauk í dag

Fótbolti
Vel heppnuðum fótboltaskóla KA lauk í dag
Það var líf og fjör í skólanum!

Meistaraflokkur KA í knattspyrnu hélt í vikunni skemmtilegan fótboltaskóla fyrir krakka í 6. og 7. flokk. Dagarnir hófust á æfingum og leikjum áður en kom að nestispásu, eftir hana tóku við hinar ýmsu keppnir og spil. Krökkunum var skipt í hópa eftir aldri og var unnið í litlum hópum til að hámarka fjölda snertinga við boltann.

Það má með sanni segja að skólinn hafi heppnast afar vel og voru dagarnir mjög fjölbreyttir auk þess sem allir fengu verkefni við sitt hæfi. Leikmenn meistaraflokks KA leiðbeindu krökkunum og hitti það svo sannarlega í mark hjá þeim að vera svo nærri hetjunum sínum!

Á sama tíma og við þökkum kærlega fyrir samstarfið í knattspyrnuskólanum viljum við benda á að nú tekur við Leikjaskóli KA fyrir krakka 6-12 ára og er hægt að sjá meiri upplýsingar um hann með því að smella hér.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is