Vladan Dogatovic til liðs við KA á láni

Fótbolti
Vladan Dogatovic til liðs við KA á láni
Velkominn í KA Vladan!

Knattspyrnudeild KA hefur náð samkomulagi við Grindavík um lán á Vladan Dogatovic út keppnistímabilið. Vladan sem er 36 ára gamall markvörður frá Serbíu hefur leikið með Grindavík frá árinu 2019 en þar áður hafði hann leikið allan sinn feril í Serbíu.

Kristijan Jajalo markvörður KA handleggsbrotnaði á dögunum og verður frá næstu mánuðina. Það var því mikilvægt að bregðast við stöðunni og afar jákvætt að fá inn jafn sterkan leikmann og Vladan er með jafn skömmum fyrirvara.

Við bjóðum Vladan velkominn í KA en hann kemur til móts við leikmannahópinn um helgina.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is