Ýmir Már framlengir við KA

Fótbolti

Ýmir Már Geirsson framlengdi í dag samningi sínum við knattspyrnudeild KA um tvö ár og njótum við því áfram krafta þessa öfluga miðjumanns. Ýmir sem er 23 ára gamall er uppalinn hjá félaginu og hefur leikið alls 34 meistaraflokksleiki í deild og bikar.

Á síðasta tímabili lék Ýmir fjóra leiki fyrir KA en hann stundar háskólanám í Vermont í Bandaríkjunum og missti því af stórum hluta sumarsins hjá KA en hann leikur einnig með knattspyrnuliði háskólans í Vermont. Þá hefur Ýmir einnig leikið 24 leiki sem lánsmaður hjá Magna og Dalvík/Reyni.


Ýmir gerði ógleymanlegt sigurmark í Grindavík á lokamínútunum sumarið 2018

Það eru virkilega góð tíðindi að halda Ými innan okkar raða enda er hann öflugur og metnaðarfullur leikmaður sem verður gaman að fylgjast með á komandi sumri.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is