7 fulltrúar KA í Hæfileikamótun KSÍ

Fótbolti

Dagana 21.-22. september næstkomandi fer fram Hæfileikamótun KSÍ og N1 fyrir stráka fædda árin 2005 og 2006. Ljóst er að þetta er frábært tækifæri fyrir metnaðarfulla leikmenn en strákunum verður skipt upp í nokkur lið og munu fá góða leiðsögn frá sérfræðingum á vegum KSÍ.

KA á alls 7 fulltrúa í hópnum en það eru þeir Ágúst Ívar Árnason, Elvar Máni Guðmundsson, Hákon Orri Hauksson, Hjörtur Freyr Ævarsson, Ívar Arnbro Þórhallsson, Sindri Sigurðsson og Valdimar Logi Sævarsson.

Við óskum strákunum til hamingju með valið sem og góðs gengis á komandi æfingum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is