Æfingatafla handboltans í vetur

Handbolti

Mánudaginn 26. ágúst tekur við vetrartaflan hjá yngriflokkum KA og KA/Þórs í handboltanum og hvetjum við að sjálfsögðu alla sem hafa áhuga til að kíkja á æfingu og prófa handbolta. 3.-6. flokkur hafa verið að æfa undanfarnar vikur en nú er komið að því að 7. og 8. flokkur fari einnig af stað.

Æfingatöfluna má sjá hér fyrir ofan en allar upplýsingar um veturinn má finna með því að smella á hlekinn hér fyrir neðan.

Upplýsingar um æfingatöflu og verðskrá vetrarins

Styrktaræfingar eru fyrir 3. og 4. flokk og eru í umsjón Egils Ármanns Kristinssonar styrktarþjálfara. Þær hefjast mánudaginn 2. september.

3. flokkur karla æfir þriðjudaga og föstudaga kl. 16:15
3. flokkur kvenna æfir þriðjudaga og föstudaga kl. 16:15
4. flokkur karla æfir mánudaga kl. 19:20
4. flokkur kvenna æfir þriðjudaga kl. 15:15


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is