Ársmiðasalan er hafin fyrir sumarið!

Fótbolti
Ársmiðasalan er hafin fyrir sumarið!
Magnað fótboltasumar framundan!

Fótboltasumarið er að hefjast en baráttan í Bestu deildinni hefst 20. apríl með heimaleik KA gegn Leikni. Það er því um að gera að koma sér strax í gírinn og tryggja sér ársmiða en ársmiðasalan er nú hafin og fer öll fram í gegnum miðasöluappið Stubbur að þessu sinni.

Þá mætast KA og Þór í úrslitaleik Kjarnafæðismótsins á laugardaginn klukkan 19:30 í Boganum. Miðaverð er 1.000 kr og fer allur ágóði til hjálparstarfs í Úkraínu. Veislan er að hefjast gott fólk, gerum þetta saman í allt sumar, áfram KA!

Ársmiðasalan er hafin en í boði eru fjórir valmöguleikar:

Bronsmiði - 20.000 kr

Bronsmiðinn veitir aðgang að heimaleikjum KA í Bestu deildinni.

Bronsmiði 16-25 ára - 12.500 kr

Bronsmiðinn veitir aðgang að heimaleikjum KA í Bestu deildinni fyrir 16-25 ára.

Silfurmiði - 30.000 kr

Silfurmiðinn veitir aðgang að heimaleikjum KA í Bestu deildinni.
Silfurmiðinn veitir einnig aðgang að kaffinu í hálfleik.

Gullmiði - 50.000 kr

Gullmiðinn veitir aðgang að heimaleikjum KA í Bestu deildinni.
Gullmiðinn veitir einnig aðgang að kaffinu í hálfleik.
Fyrir tvo leiki í sumar verður flottur matur og spjall í boði fyrir gullmiðahafa.

Athugið að ef einhverjar spurningar eru varðandi Stubb er hægt að hafa samband við agust@ka.is


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is