Ásdís valin best hjá KA/Þór

Handbolti
Ásdís valin best hjá KA/Þór
Rakel Sara, Matea og Ásdís með verðlaun sín

Kvennalið KA/Þórs hélt glæsilegt lokahóf í veislusal Greifans í kvöld og gerði þar upp nýliðið handboltatímabil. Liðið endaði í 6. sæti Olís deildarinnar en hápunktur vetrarins var án nokkurs vafa bikarævintýri liðsins þar sem stelpurnar fóru í fyrsta skipti í sögunni í úrslitaleikinn.

Ásdís Guðmundsdóttir var valin besti leikmaður tímabilsins en hún gerði alls 86 mörk í vetur í 20 leikjum. Hún stóð heldur betur fyrir sínu á línunni og verðskuldar þennan heiður fyrir framgöngu sína.

Rakel Sara Elvarsdóttir var valin efnilegasti leikmaður liðsins en Rakel sem er aðeins 17 ára gömul er þrátt fyrir það algjör lykilleikmaður í liðinu og var að klára sitt annað tímabil í meistaraflokki. Hún gerði 61 mark í hægra horninu í vetur.

Þá var Matea Lonac markvörður valin besti liðsfélaginn en þessi hressi Króati fór mikinn í markinu þar sem hún varði 249 skot í vetur. Þá gerði hún einnig tvö mörk þar af ótrúlegt sigurmark á lokasekúndunni yfir allan völlinn gegn Stjörnunni sem mun seint gleymast!

Það er mikill hugur innan liðsins fyrir komandi vetri og verður gaman að fylgjast með okkar öfluga liði halda áfram að stíga fram á við næsta vetur.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is