Ásgeir framlengir út sumarið 2022

Fótbolti

Ásgeir Sigurgeirsson skrifaði í dag undir nýjan samning við Knattspyrnudeild KA og er hann nú samningsbundinn félaginu út sumarið 2022. Þetta eru frábærar fréttir enda Ásgeir gríðarlega öflugur leikmaður sem hefur átt mikinn þátt í uppgangi KA-liðsins undanfarin ár.

Ásgeir sem er 23 ára gamall kom á láni til KA fyrir sumarið 2016 frá norska liðinu Stabæk og sló heldur betur í gegn er KA tryggði sér loksins sæti í efstu deild með sannfærandi sigri í Inkasso deildinni. Ásgeir skoraði 8 mörk það sumarið og þar á meðal sigurmarkið gegn Selfyssingum sem tryggði úrvalsdeildarsætið.

Í kjölfarið gekk Ásgeir endanlega til liðs við KA og hefur leikið 56 leiki fyrir liðið í efstu deild og gert í þeim 16 mörk. Alls eru deildar- og bikarleikir hans fyrir KA orðnir 76 og mörkin 24 talsins hjá þessum magnaða Húsvíking.

Ekki nóg með að vera gríðarlega öflugur á vellinum þá er Ásgeir til fyrirmyndar utan vallar og ljóst að það er gríðarlega jákvætt fyrir félagið að njóta áfram krafta hans næstu árin.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is