Bikarleikur á miðvikudaginn á KA-Velli

Almennt | Fótbolti
Bikarleikur á miðvikudaginn á KA-Velli
Emil Lyng skoraði sitt fyrsta mark í síðasta leik

KA leikur sinn fyrsta leik í Borgunarbikarnum þegar ÍR-ingar mæta á KA-Völl á miðvikudaginn klukkan 18:00. Leikurinn er liður í 32-liða úrslitum keppninnar og mikið í húfi eins og í hverjum einasta leik í bikarnum.

KA vann góðan 2-0 sigur á Fjölnismönnum á sunnudaginn í fyrsta heimaleik sumarsins en sá leikur fór fram á Akureyrarvelli. Helstu atvik úr þeim leik má sjá hér fyrir neðan.

Liðið er á toppi Pepsi deildarinnar eftir þrjár umferðir með 7 stig ásamt Stjörnunni og Val en bikarinn er allt önnur keppni og mjög mikilvægt að við fjölmennum á KA-Völl og styðjum strákana áfram í næstu umferð, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is