Bjarni Aðalsteins framlengir út 2024

Fótbolti
Bjarni Aðalsteins framlengir út 2024
Bjarni og Arnar handsala samninginn

Bjarni Aðalsteinsson hefur framlengt samning sínum við knattspyrnudeild KA út árið 2024. Bjarni sem verður 22 ára á árinu er öflugur miðjumaður sem er uppalinn í KA.

Bjarni hefur leikið 32 leiki fyrir KA í deild og bikar en auk þess hefur hann einnig leikið sem lánsmaður með Magna og Dalvík/Reyni. Þá hefur hann einnig leikið í Bandaríska háskólaboltanum og klárt að Bjarni ætlar sér stóra hluti með KA liðinu.

Það er ljóst að það eru gríðarlega jákvæðar fréttir að halda Bjarna innan okkar raða næstu árin enda uppalinn hjá félaginu og mikið efni. Hann hefur nýtt tækifærin með KA liðinu vel og verður áfram gaman að fylgjast með honum í gula og bláa búningnum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is