Björgvin Máni á úrtaksæfingar hjá U-15

Fótbolti
Björgvin Máni á úrtaksæfingar hjá U-15
Björgvin fær flott tækifæri hjá U-15

Lúðvík Gunnarsson þjálfari U-15 ára landsliðs karla í knattspyrnu valdi í dag hóp leikmanna sem tekur þátt í úrtaksæfingum 25.-27. janúar. KA á einn fulltrúa í hópnum en það er hann Björgvin Máni Bjarnason og óskum við honum til hamingju með valið sem og góðs gengis á æfingunum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is