Björgvin Máni á úrtaksæfingar hjá U-17

Fótbolti
Björgvin Máni á úrtaksæfingar hjá U-17
Björgvin Máni er fulltrúi KA í hópnum

Björgvin Máni Bjarnason hefur verið valinn á úrtaksæfingar hjá U-17 ára landsliði Íslands í knattspyrnu sem mun æfa dagana 6.-8. júlí næstkomandi. Björgvin sem gríðarlega mikið efni er fæddur árið 2004 og er því ári yngri en flestir í hópnum. 

Við óskum honum til hamingju með valið sem og góðs gengis á æfingunum. Davíð Snorri Jónasson er landsliðsþjálfari U-17 og fara æfingarnar fram á æfingasvæði Fram í Safamýri.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is