Brynjar Ingi valinn í U21 landsliðið

Fótbolti
Brynjar Ingi valinn í U21 landsliðið
Stórleikir framundan hjá U21 landsliðinu

Brynjar Ingi Bjarnason varnarmaður KA hefur verið valinn í U21 árs landslið Íslands sem undirbýr sig fyrir leiki gegn Ítalíu og Englandi á næstu dögum. Brynjar sem verður tvítugur í desember lék 14 leiki með KA liðinu í deild og bikar í sumar og á þetta tækifæri svo sannarlega skilið.

Leikurinn gegn Ítölum fer fram 16. nóvember og er liður í undankeppni EM þar sem íslenska liðið er með 9 stig eftir fjóra leiki og er í harðri baráttu um að tryggja sér sæti í lokakeppninni. Leikurinn gegn  Englendingum er hinsvegar vináttuleikur og fer fram 19. nóvember.

Við óskum Brynjari Inga til hamingju með valið sem og góðs gengis í þessu spennandi verkefni.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is