92 ára afmælisfögnuður KA á sunnudaginn

Almennt

Í dag 8. janúar fagnar Knattspyrnufélag Akureyrar 92 ára afmæli sínu og verður haldið upp á tímamótin með kaffiboði í KA-Heimilinu á sunnudaginn klukkan 14:00. Þar munum við krýna íþróttamann KA fyrir árið 2019 auk þess sem Böggubikarinn verður afhentur.

Átta einstaklingar eru tilnefndir til íþróttamanns KA þetta árið en það eru þau Alexander Heiðarsson (júdó), Áki Egilsnes (handbolti), Berenika Bernat (júdó), Elfar Árni Aðalsteinsson (fótbolti), Hulda Bryndís Tryggvadóttir (handbolti), Hulda Elma Eysteinsdóttir (blak), Karen María Sigurgeirsdóttir (fótbolti) og Miguel Mateo Castrillo (blak). Smelltu hér til að kynnast afrekum þeirra á árinu betur.

Einnig eru átta einstaklingar tilnefndir til Böggubikarsins en hann er farandbikar sem veittur er einstaklingum, pilti og stúlku, á aldrinum 16-19 ára sem þykja efnileg í sinni grein en ekki síður mjög sterk félagslega. Einstaklingum sem eru til fyrirmyndar á æfingum og í keppnum og eru bæði jákvæð og hvetjandi.

Í ár eru eftirfarandi tilnefndir Arnór Ísak Haddson (handbolti), Birgir Baldvinsson (fótbolti), Gísli Marteinn Baldvinsson (blak), Gylfi Rúnar Edduson (júdó), Hekla Dís Pálsdóttir (júdó), Jóna Margrét Arnarsdóttir (blak), Karen María Sigurgeirsdóttir (fótbolti) og Rakel Sara Elvarsdóttir (handbolti). Smelltu hér til að kynnast afrekum þeirra á árinu betur.

Allir eru velkomnir í KA-Heimilið á sunnudaginn og taka þátt í gleðinni með okkur, hlökkum til að sjá ykkur


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is