Dramatískar lokamínútur í jafntefli gegn KR

Almennt
Dramatískar lokamínútur í jafntefli gegn KR
Mynd - Egill Bjarni Friðjónsson

KA og KR mættust í dag í 9. umferð Pepsi Max deildarinnar á Greifavellinum á Akureyri. Leiknum lauk með markalausu jafntefli en dramatíkin var allsráðandi á lokakafla leiksins.

KA 0 – 0 KR

0 - 0 Guðmundur Steinn Hafsteinsson (’90) Misnotuð vítaspyrna.

Áhorfendatölur:

844 áhorfendur

Lið KA:

Kristijan Jajalo, Hrannar Björn, Brynjar Ingi, Mikkel Qvist, Ívar Örn, Rodrigo, Andri Fannar Bjarni, Hallgrímur Mar, Steinþór Freyr og Gunnar Örvar.

Bekkur:

Aron Dagur, Almarr, Ásgeir, Ýmir Már, Jibril Abubakar, Sveinn Margeir og Guðmundur Steinn.

Skiptingar:

Almarr inn – Rodrigo út (’46)

Ásgeir inn – Steinþór Freyr út (’61)

Guðmundur Steinn inn – Gunnar Örvar út (’73)

Sveinn Margeir inn – Bjarni Aðalsteinsson út (’85)

Ýmir Már inn – Hallgrímur Mar út (’85)

Arnar Grétarsson gerði þrjár breytingar frá jafnteflinu í Krikanum í síðustu umferð. Inn í liðið komu Andri Fannar, Steinþór Freyr og Gunnar Örvar.

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og átti hvorugt liðið skot að marki fyrsta hálftíma leiksins en bæði lið komust nokkrum sinnum í ágætis stöður. Staðan í hálfleik var markalaus í heldur bragðdaufum fyrri hálfleik.

KA hófu seinni hálfleikinn af krafti og voru mun betra liðið á fyrstu tuttugu mínútum hálfleiksins. Á 71. mínútu leiksins komust gestirnir nálægt því að komast yfir þegar að Jajalo misreiknaði langan bolta frá Kennie Chopart og endaði boltinn hjá Óskari Erni sem gat sett boltann í autt markið en skaut himinhátt yfir þegar að hann tók skotið í fyrsta á lofti.

Síðustu tíu mínútur leiksins voru heldur betur athyglisverðir og var dramatíkin allsráðandi. Á 83. mínútu barst boltinn inn á teig þar sem Beitir hitti boltann illa og spyrnti honum beint á Guðmund Stein sem skoraði af stuttu færi og KA menn ærðust úr fögnuði. Dómari leiksins Ívar Orri var hins vegar á öðru máli og í samráði við aðstoðardómara sinn dæmdu þeir rangstöðu sem virðist við fyrstu sín vera óskiljanlegur dómur þar sem það var Beitir sem spyrnti boltanum á Guðmund Stein. Fróðlegt verður að sjá endursýningu af atvikinu þar sem markið virtist fullkomlega löglegt og voru leikmenn KA gríðarlega ósáttir við niðurstöðu dómaranna.

KR brunuðu svo fram völlinn og komst Atli Sigurjónsson nálægt því að skora en Jajalo varði vel. Við lok venjulegs leiktíma átti varamaðurinn Sveinn Margeir góðan sprett inn í teig þar sem Kennie Chopart braut á honum og vítaspyrna dæmd. Á punktinn steig Guðmundur Steinn en vítaspyrna hans var slök og varði Beitir í marki KR hana. Ótrúlegum lokamínútum lauk svo eftir 8 mínútna uppbótartíma með markalausu jafntefli.

KA liðið var ógnarsterkt varnarlega í dag og áttu Íslandsmeistarar KR í miklum vandræðum með að komast í gegnum varnarleik KA í dag. KA spilaði flottan fótbolta í seinni hálfleik og var grátlega nálægt því að taka stigin þrjú. Spilamennska liðsins hefur verið jákvæð upp á síðkastið og nær liðið vonandi að byggja á þessu.

Nivea KA-maður leiksins: Mikkel Qvist (Var feykilega öflugur í vörn KA í dag og vann ófáa skallabolta og hélt sóknarmönnum KR niðri.)

Næsti leikur KA er á fimmtudaginn í Mjólkurbikarnum þegar að við tökum á móti ÍBV á Greifavellinum á Akureyri. Hefst sá leikur kl. 17:30 og vonumst við til að sjá sem flesta á vellinum. Áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is