Dramatískur sigur á Gróttu

Almennt
Dramatískur sigur á Gróttu
Mynd - Sævar Geir

KA vann í dag sinn fyrsta sigur í sumar í Pepsi Max deildinni þegar að liðið hafði betur gegn nýliðum Gróttu á Greifavelli á Akureyri með sigurmarki á lokamínútu venjulegs leiktíma frá Steinþóri Frey Þorsteinssyni.

KA 1 – 0 Grótta

1 - 0 Steinþór Freyr Þorsteinsson (’90) Stoðsending: Guðmundur Steinn

Áhorfendatölur:

785 áhorfendur

Lið KA:

Kristijan Jajalo, Hrannar Björn, Brynjar Ingi, Mikkel Qvist, Andri Fannar, Rodrigo, Almarr, Bjarni, Hallgrímur Mar, Ásgeir og Guðmundur Steinn.

Bekkur:

Aron Dagur, Jibril Abubakar, Ýmir Már, Gunnar Örvar, Steinþór Freyr, Adam Örn og Sveinn Margeir.

Skiptingar:

Sveinn Margeir inn – Almarr út (’85)

Steinþór Freyr inn – Hallgrímur Mar út (’85)

Jibril Abubakar inn – Guðmundur Steinn út (’94)

Nýr þjálfari KA, Arnar Grétarsson gerði eina breytingu á liðinu frá síðasta leik gegn Fjölni. Ívar Örn var í leikbanni en hann hefur fengið 4 gul spjöld í sumar og var því ekki með. Inn í liðið hans stað kom Bjarni Aðalsteinsson.

KA stýrði ferðinni frá fyrstu mínútu í dag og voru allt í öllu á upphafsmínútum leiksins. Það voru hins vegar gestirnir sem áttu skot í stöng eftir tuttugu mínútna leik. Þar var að verki Kristofer Orri en skot hans fór af varnarmanni KA og í stöngina í fyrstu sókn gestanna.

Fimm mínútum síðar var komið að KA liðinu. Þá átti Bjarni flotta sendingu upp í horn á Ásgeir sem keyrði inn á völlinn og átti skot sem hafnaði í slánni. Almarr var nálægt því að komast í boltann og fylgja eftir skotinu en Gróttumenn komust fyrir boltann og björguðu marki.

Eftir sláar skot Ásgeirs vöknuðu gestirnir heldur betur og áttu nokkrar álitlegar tilraunir að marki KA. Mikil hætta skapaðist í föstum leikatriðum gestanna og mátti litlu muna að þeir kæmust yfir. Staðan í hálfleik hins vegar markalaus þar sem KA menn voru mikið mun betri til að byrja með en gestirnir áttu sínar syrpur þegar að leið á hálfleikinn.

KA stýrði ferðinni í seinni hálfleik og var ljóst að gestirnir í Gróttu ætluðu að liggja til baka og beita hröðum skyndisóknum á KA. Engu mátti muna að Axel Sigurðarson kæmi gestunum yfir er hann slapp í gegn eftir viðskipti við Mikkel en Jajalo gerði vel og varði.

Hallgrímur Mar komst nálægt því þegar að um tuttugu mínútur voru til leiks loka að skora úr aukaspyrnu af löngu færi en Hákon í marki Gróttu rétt náði að koma skoti Hallgríms í horn.

Á lokamínútu venjulegs leiktíma átti Hrannar Björn fyrirgjöf með vinstri fæti sem Guðmundur Steinn skallaði áfram í átt að marki og varamaðurinn Steinþór Freyr stökk manna hæst og skallaði boltann framhjá Hákoni í marki Gróttu og kom KA liðinu yfir. Frábært mark hjá Stálmúsinni sem gaf ekki tommu eftir og gaf sig allann í þennan skalla sem skilaði markinu.

Skömmu seinna flautaði Pétur dómari til leiksloka og fyrsti sigur sumarsins, staðreynd. Gríðarlega mikilvægur sigur hjá KA liðinu og gaman að sjá liðið sækja sigurinn í lokin.

Nivea KA-maður leiksins: Rodrigo Gomes (Var sem klettur á miðjunni hjá KA í dag. Hefur komið vel inn í liðið frá því að hann kom til baka úr meiðslum.)

Það er skammt stórra högga á milli og er næsti leikur KA á miðvikudaginn þegar að við mætum FH-ingum í Kaplakrika. Hefst sá leikur kl. 18.00 og hvetjum við KA menn á höfuðborgarsvæðinum að skella sér á völlinn og styðja við bakið á liðinu. Áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is