Föstudagsframsagan: Ingvar Gíslason

Almennt
Föstudagsframsagan: Ingvar Gíslason
Góður matur og góður ræðumaður á föstudaginn!

Föstudagsframsagan hefur vakið mikla lukku hjá okkur KA mönnum og nú er röðin komin að Ingvari Má Gíslasyni formanni KA. Ingvar mun meðal annars fara yfir stöðuna á samningsviðræðum við Akureyrarbæ en mikill áhugi og forvitni er meðal félagsmanna KA um stöðu mála.

Rekstrarsamningur KA við Akureyrarbæ rennur út nú um áramótin og í beinu framhaldi af opnum félagsfundi sem haldinn var í KA-Heimilinu rétt fyrir kosningar í vor, mun Ingvar segja félagsmönnum frá því hvernig málin standa, og hvers er að vænta í komandi samning. Einnig mun Ingvar fara yfir stöðu mála í framtíðaruppbyggingu á KA-svæðinu.

Félagsmönnum gefst svo kostur á að spyrja Ingvar að framsögu lokinni. Þetta er eitthvað sem enginn félagsmaður má missa af.

Vídalín Veitingar bjóða uppá Lasagne og meðlæti fyrir aðeins 2.000 krónur og hefst dagskráin klukkan 12:00, sjáumst í KA-Heimilinu!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is