Grautardagur KA á sunnudaginn

Almennt
Grautardagur KA á sunnudaginn
Mjólkurgrautur og slátur fyrir alla sem mæta!

Það verður skemmtilegt í hádeginu í KA-Heimilinu á sunnudaginn þegar við höldum grautardaginn. Þá bjóðum við félagsmönnum upp á mjólkurgraut og slátur auk þess sem deildir félagsins verða með ýmsan varning til sölu.

Dagskráin hefst klukkan 11:30 og lýkur uppúr 13:00. Það er um að gera að mæta og gæða sér á góðum mat í frábærum félagsskap, hlökkum til að sjá ykkur!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is