Gylfi keppir í Finnlandi

Almennt | Júdó

Níu keppendur frá Íslandi munu keppa á Opna finnska meistaramótinu í júdó sem haldið verður í Turku Finnlandi á laugardaginn næstkomandi. Gylfi Rúnar Edduson mun keppa í -66kg flokki í U18 og U21. Landsliðsþjálfarar eru Jón Þór Þórarinsson og Þormóður Jónsson. Keppni mun hefjast kl. 7 að íslenskum tíma. Á sunnudaginn tekur hópurinn þátt í alþjóðlegum æfingabúðum sem haldnar eru í tengslum við mótið.

Hægt verður að fylgjast með keppninni og útsendingu hér.

KA óskar Gylfa góðs gengis.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is