6 frá KA og KA/Þór í Hæfileikamótun HSÍ

Handbolti
6 frá KA og KA/Þór í Hæfileikamótun HSÍ
Glæsilegir fulltrúar okkar í Hæfileikamótuninni

Hæfileikamótun HSÍ og Bláa Lónsins fer fram í þriðja skiptið í vetur helgina 28. febrúar til 1. mars næstkomandi. Þar munu strákar og stelpur fædd 2006 æfa undir stjórn Halldórs Jóhanns Sigfússonar og Rakelar Dögg Bragadóttur og fá þar smjörþefinn af því hvernig yngri landslið HSÍ æfa hverju sinni.

Búið er að skera hópinn niður frá fyrri æfingahópum og voru nú valdir 5 strákar úr starfi KA og ein stelpa úr KA/Þór. Fulltrúar okkar eru þau Dagur Árni Heimisson, Hugi Elmarsson, Jens Bragi Bergþórsson, Magnús Dagur Jónatansson, Óskar Þórarinsson og Hekla Halldórsdóttir.

Við óskum þeim til hamingju með valið sem og góðs gengis næstu helgi. Þetta framtak er klárlega gulrót fyrir iðkendur okkar til að halda áfram að gera sitt besta og á HSÍ hrós skilið fyrir framtakið.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is