6 frá KA og KA/Þór í hæfileikamótun HSÍ

Handbolti
6 frá KA og KA/Þór í hæfileikamótun HSÍ
Glæsilegir fulltrúar okkar í Hæfileikamótuninni

Hæfileikamótun HSÍ og Bláa lónsins fer fram helgina 16. - 17. maí næstkomandi en þar æfa strákar og stelpur fædd 2006 undir stjórn Halldórs Jóhanns Sigfússonar og Rakelar Dögg Bragadóttur og fá þar smjörþefinn af því hvernig yngri landslið HSÍ æfa hverju sinni.

Alls voru 5 strákar úr starfi KA valdir og ein stelpa úr KA/Þór valin að þessu sinni og hafa þau öll verið valin í fyrri hópa vetrarins. Þau fá því áfram að sýna sig fyrir þeim Halldóri Jóhanni og Rakel Dögg.

Fulltrúar okkar eru þau Dagur Árni Heimisson, Hugi Elmarsson, Jens Bragi Bergþórsson, Magnús Dagur Jónatansson, Óskar Þórarinsson og Hekla Halldórsdóttir.

Við óskum þeim til hamingju með valið sem og góðs gengis í þessu spennandi verkefni. Þetta framtak er klárlega gulrót fyrir iðkendur okkar til að halda áfram að gera sitt besta og á HSÍ hrós skilið fyrir framtakið.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is