Árni Bragi til liðs við KA

Handbolti
Árni Bragi til liðs við KA
Árni og Haddur voru vel sprittaðir fyrir mynd

Handknattleiksdeild KA fékk í dag góðan liðsstyrk þegar Árni Bragi Eyjólfsson skrifaði undir tveggja ára samning. Árni Bragi er 25 ára hægri hornamaður sem einnig getur leikið í hægri skyttu gengur til liðs við KA frá danska úrvalsdeildarliðinu KIF Kolding.

Þar áður fór hann mikinn með liði Aftureldingar og var hann til að mynda markahæsti leikmaður leikmaður liðsins tímabilin 2015-2016, 2016-2017 og 2017-2018. Það er ljóst að koma Árna Braga norður mun styrkja KA liðið mikið fyrir komandi vetur og ætlumst við til mikils af þessum flotta leikmanni.

KA hefur á undanförnum árum byggt upp lið sem hefur fest sig í sessi í deild þeirra bestu og ætlar sér nú að gera enn betur. Við bjóðum Árna Braga velkominn norður.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is