Arnór Ísak í lokahóp U-17 landsliðsins

Handbolti
Arnór Ísak í lokahóp U-17 landsliðsins
Arnór Ísak er flottur fulltrúi KA í hópnum

Arnór Ísak Haddsson er í lokahóp U-17 ára landsliðs Íslands í handbolta sem tekur þátt á Opna Evrópumótinu í Gautaborg 1.-5. júlí næstkomandi sem og Ólympíuhátið Evrópuæskunnar sem fer fram í Baku í Azerbaijan 21.-27. júlí.

Arnór Ísak hefur verið fastamaður í landsliðinu sem hefur náð flottum árangri að undanförnu. Við óskum honum til hamingju með valið sem og liðinu góðs gengis á mótinu. Þjálfarar liðsins eru þeir Guðmundur Helgi Pálsson og Maksim Akbachev.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is