Bæjarslagur í kvöld hjá ungmennaliðunum

Handbolti
Bæjarslagur í kvöld hjá ungmennaliðunum
Strákarnir eru klárir í slaginn!

Það er áfram líf og fjör í handboltanum en í kvöld er sannkallaður bæjarslagur þegar ungmennalið KA sækir ungmennalið Akureyrar heim í Höllina. Leikurinn er liður í 2. deild karla og má búast við svakalegum leik eins og alltaf þegar liðin í bænum mætast.

KA liðið hefur farið mjög vel af stað og hefur unnið báða leiki sína í vetur en nágrannar okkar í Akureyri hafa unnið einn og tapað einum. Það er miklu meira undir heldur en bara tvö stig enda ansi mikilvægt að hafa montréttinn réttu megin.

Leikurinn fer fram í Höllinni og hefst klukkan 19:30, við hvetjum ykkur að sjálfsögðu til að mæta og styðja strákana okkar til sigurs en það er frítt inn á leikinn.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is