Fjögurra stiga heimaleikur KA/Þórs í kvöld

Handbolti

Það er alvöru leikur framundan í kvöld þegar KA/Þór tekur á móti Stjörnunni klukkan 18:00 í KA-Heimilinu. Þarna eru liðin í 3. og 4. sæti Olís deildar kvenna að mætast og ljóst að gríðarlega mikilvæg stig eru í húfi.

Stelpurnar hafa verið mjög flottar það sem af er vetri og ætla sér sæti í úrslitakeppninni í vor. Það verður þó virkilega krefjandi verkefni enda mikil spenna í efri hluta deildarinnar og ekki nokkur spurning að við þurfum á þínum stuðning að halda í kvöld!

Ef þú kemst ekki á leikinn þá verður hann í beinni á KA-TV í kvöld og er hægt að nálgast útsendinguna hér fyrir neðan, áfram KA/Þór!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is