Frítt á handboltaveislu laugardagsins

Handbolti
Frítt á handboltaveislu laugardagsins
Nú sækjum við tvo mikilvæga sigra!

Það er sannkölluð handboltaveisla í KA-Heimilinu á laugardaginn er KA og KA/Þór leika heimaleiki í Olís deildinni. KA/Þór byrjar daginn kl. 14:30 með risaleik gegn HK en liðin eru í svakalegri baráttu um sæti í úrslitakeppninni.

Í kjölfarið kl. 17:00 tekur KA á móti Fram en aðeins einu stigi munar á liðunum og eru strákarnir staðráðnir í að sækja góðan sigur og fara upp fyrir Framara í deildinni.

Sprettur-inn býður öllum frítt á leikina og það er því um að gera að taka sem flesta með sér í stúkuna og sjá til þess að liðin okkar sæki mikilvæga sigra, áfram KA og KA/Þór!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is