Frítt á tvíhöfða dagsins í KA-Heimilinu

Handbolti
Frítt á tvíhöfða dagsins í KA-Heimilinu
Algjör veisla framundan í dag!

Það eru tveir stórleikir í handboltanum í dag þegar bæði karlalið KA og kvennalið KA/Þórs leika heimaleiki. Konurnar hefja daginn klukkan 14:30 þegar þær fá HK í heimsókn en bæði lið eru í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni og þurfa stelpurnar okkar á sigri að halda.

Klukkan 17:00 er svo komið að körlunum en KA tekur þá á móti Fram en aðeins munar einu stigi á liðunum fyrir leikinn og mun KA með sigri fara uppfyrir Fram í deildinni.

Það er því heldur betur mikilvægt að við fáum alvöru stuðning úr stúkunni í dag og þökk sé Sprettinum, Imperial, Greifanum og Leirunesti er frítt fyrir alla á leikina. Það er því engin afsökun fyrir því að missa af leikjum dagsins og hlökkum við til að sjá ykkur!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is